Hér fyrir neðan má finna skjáskot af einkennafyrirlestri Maritafræðslunnar á foreldrafyrirlestrum.
Mikilvægt er að hafa í huga að eitt einkenni, ein vísbending er ekki endilega sönnun þess að einstaklingur sé í neyslu. Best er ef hægt er að finna 2-3 einkenni og tengja þau saman.

Úr kannabisplöntunni hafa, í gegnum tíðina, aðallega verið unnar 3 gerðir af vímugjafa. Þessar 3 gerðir eru hass, hassolía og marijúana.

Nú í seinni tíð hefur verið framleitt meira og meira af sælgæti-matvælum sem hafa innihaldið vímugjafann THC. Þetta á sérstaklega við um þau fylki Bandaríkjanna þar sem almenn neysla hefur verið leyfð.
Smelltu hér, eða á myndina til þess að sjá frétt um lagasetningu í Colarado um skyldu-merkingar á svona vörum.
Kannabisplantan hefur breyst töluvert, bæði í styrkleika af því efni sem hefur hugbreytandi áhrif á mannsheilann, THC og líka í útliti.


Hér má sjá þurran blómatopp og til þess að mylja blómatoppinn niður, svo hægt sé að vefja í sígarettu er notuð kvörn.

Hér er mynd af svonefndum kvörnum sem eru notaðar til þess að mylja þurrkaða blómatoppa nútíma kannabisplöntu.


Hér má sjá blómatoppa, eða bödda eins og þeir eru stundum kallaðir.

Hvað kostar marijuana á Íslandi?

Eitt gramm af marijúna dugar í 4 marijúna-sígarettur, eða jónur, ef tóbak er blandað með, eins og sést gert á mynd hér neðar.

Ein marijúana-sígaretta getur dugað til að setja 5 einstaklinga í vímuástand á "fikt"-tímabilinu.

Hér fyrir neðan má sjá lista af mögulegum "götunöfnum" á kannabisefnum. Þetta er engan veginn tæmandi listi heldur aðeins hugsað til að gefa sýnishorn af því sem hefur verið notað sem götunöfn. Þetta mætti líka kalla leyninöfn því hugmyndin á bak við nöfnin er ekki bara að nota nöfnin sem tíðkast á hverjum tíma heldur líka að leyna því hvað átt er við t.d. fyrir foreldrum.


Hugmyndir um útlitseinkenni sem gætu bent til neyslu kannabisefna.

Rauðeygður einstaklingur, með stóran augastein, gæti mögulega hafa verið að reykja kannabis. Oft eru augndropar notaðir til þess að fríska upp á augun.



Sýnishorn um fatnað sem annað hvort er skeyttur laufblaði af kannabisplöntu eða í litum rastafari trúar.
Smelltu hér,eða á myndina til að sjá betur hvað átt er við.

Þessi hárstíll kallast dreadlocks eða dreddar á íslensku. Rastafari trúin tileinkaði sér þennan hárstíl. Margir einstaklingar eru með "dredda" ÁN ÞESS að þeir séu að nota kannabisefni, en það eru mjög margir sem nota kannabis með þessa hárgreiðslu.
Smelltu hér, eða á myndina til þess að sjá betur hvað við er átt.
Vigt eða vog er notuð til þess að búa til söluskammta.

Ef sígarettubréf finnast sem eru tómar þ.e. það er búið að fjarlægja tóbakið þá er það mögulegt að tóbakið hafi verið notað til íblöndunnar í marijuana-sígarettu.

Hér má sjá einstakling vera að búa til jónu, marijúana sígarettu. Þetta er kallað "að malla".

Álpappír, beyglaðar dósir, beyglaðar plastflöskur, afskornar 2 l. gosflöskur, rennilása plastpokar og sviðinn pappír gæti tengst kannabisreykingum.



Hér má sjá það sem heitir vaporizer á ensku, en þetta eru gufupípur eða rafmagnspípur.

Þetta kallast bong eða vatnspípur.


Ávaxtatóbakspípur.

Reglulegar úttektir af bankareikningi gætu verið vísbending, sérstaklega ef um sömu upphæðir er að ræða.

Aukasími gæti verið sölusími.

Það eru til þvagprufupróf með leiðbeiningum á íslensku. Þau fást gjarnan í apótekum.



Mikilvægt er að vera viðstaddur þegar pissað er í þvagprufuglas, ef grunur er um vímugjafaneyslu, vegna þess að það er mjög lítið mál að skemma þvagprufur. Þess vegna er best að horfa á þegar pissað er.

Hér má sjá mynd af nokkrum tegundum gervi-kannabisefna. Þessi gerviefni, eða kemísku efni mælast ekki á þvagprufum og geta verið lífshættuleg.
